Þór/KA/Hamrarnir tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í 2. flokki kvenna um síðustu helgi.
Liðið sigraði þá HK/Víking örugglega 5-1 í lokaumferðinni í A-deild. Þór/KA/Hamrarnir þurfti sigur í leiknum til að gulltryggja fyrsta sætið en liðið endaði tveimur stigum á undan Fylki.
Þór/KA er einnig á góðri leið með að vinna Pepsi-deildina í meistaraflokki kvenna en liðið getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn gegn Grindavík í næstsíðustu umferðinni á laugardag.

Lokastaðan í A-deild í 2. flokki kvenna
1. Þór/KA/Hamrarnir 28 stig
2. Fylkir 26 stig
3. Stjarnan 23 stig
4. Breiðablik/Augnablik 19 stig
5. HK/Víkingur 15 stig
6. FH 9 stig
7. Selfoss/Hamar/Ægir/Grindavík 3 stig
Hér að neðan má sjá myndband sem Haraldur Ingólfsson gerði um fögnuð Þór/KA/Hamranna.
Þór/KA/Hamrarnir - Íslandsmeistarar í 2. flokki 2017 from Haraldur Ingolfsson on Vimeo.
Athugasemdir