Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. október 2014 18:02
Magnús Már Einarsson
Alfreð í fyrsta skipti í byrjunarliði Sociedad
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alfreð Finnbogason mun spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik í spænsku úrvalsdeildinni með Real Sociedad gegn Getafe í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 18:45 og verður í beinni á Stöð 2 Sport 3.

Alfreð fór úr axlarlið rétt fyrir byrjun tímabils og missti af fyrstu leikjum Sociedad.

Hann hefur komið við sögu í þremur leikjum í La Liga og nú fær hann sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliðinu í treyju númer 7.

Real Sociedad hefur ekki byrjað tímabilið vel en liðið er með fimm stig eftir sjö leiki í 16. sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner