Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 20. október 2014 11:32
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Nútíminn 
Egill Gillz hrekktur af stuðningsmönnum Liverpool
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fjölmiðlamaðurinn og einkaþjálfarinn Egill Einarsson, oft kallaður Gillzenegger, er mikill stuðningsmaður Manchester United eins og flestum er kunnugt.

Vefsíðan nútiminn.is greinir frá því í morgun að hann var hrekktur af einhverjum stuðningsmönnum Liverpool en enginn hefur lýst verknaðinum á hendur sér.

Eftir furðulegan sigur Liverpool gegn QPR í gær hafa viðkomandi aðilar breytt skrifstofu Egils í Sporthúsinu í Kópavogi og merkt hana rækilega Liverpool.

Guðjón Helgi Guðjónsson birti meðfylgjandi myndband á Facebook sem Nútíminn birtir á síðu sinni.


Athugasemdir
banner