Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 20. október 2014 09:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Khedira til Manchester United?
Powerade
Sami Khedira er eftirsóttur.
Sami Khedira er eftirsóttur.
Mynd: Getty Images
Podolski er orðaður við Tottenham.
Podolski er orðaður við Tottenham.
Mynd: Getty Images
Slúðurpakkinn er í styttri kantinum þennan mánudaginn.



Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, segir að félagið hafi ekki áhuga á Raheem Sterling leikmanni Liverpool. (Daily Mail)

Ancelotti hefur einnig sagt Manchester United geti gleymt því að fá Cristiano Ronaldo aftur þar sem hann verði 100% áfram hjá Real Madrid. (Sun)

Liverpool er að ganga frá samningi við Andre Ayew framherja Marseille en hann verður samningslaus næsta sumar. (Daily Star)

Everton hefur líka áhuga á Ayew sem og Hull, Swansea og West Ham. (Daily Mirror)

Manchester United vonast til að hafa betur gegn Arsenal og Chelsea í baráttunni um Sami Khedira miðjumann Real Madrid. (Daily Star)

Manchester United er að undirbúa 15 milljóna punda tilboð í Matteo Darmian bakvörð Torino en hann getur spilað bæði sem hægri og vinstri bakvörður. (Daily Express)

Tottenham er að undirbúa tíu milljóna punda tilboð í Lukas Podolski leikmann Arsenal. (Caughtoffside.com)

Dani Alves hefur ekki náð samkomulagi við Manchester United en hann er ennþá í viðræðum um framlengingu hjá Barcelona. (Daily Mail)

Carlo Ancelotti segist hafa reynt að fá Steven Gerrard frá Liverpool þegar hann þjálfaði AC Milan á sínum tíma. (Daily Express)

Sam Allardyce, stjóri West Ham, segist ekki vera stressaður yfir samningamálum sínum hjá félaginu. (Independent)

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir að það sé ómögulegt að liðið geti farið taplaust í gegnum tímabilið. (Guardian)

Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englendinga, fór snemma af leik QPR og Liverpool í gær og missti þar af leiðandi af fjórum mörkum. (Daily Telegraph)

Bolton vill fá Gary Hooper framherja Norwich. (Bolton News)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner