Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 20. október 2014 11:26
Magnús Már Einarsson
„Ronaldo og Bale kæmust í úrslit í 100 metrum á ÓL"
Ronaldo er fljótur.
Ronaldo er fljótur.
Mynd: Getty Images
,,Það er ekkert lið betra í skyndisóknum en þeir því Ronaldo og Bale eru leikmenn sem gætu báðir komist í úrslit í 100 metra hlaupi á Ólympíuleikunum," segir Brendan Rodgers stjóri Liverpool um lið Real Madrid.

Liverpool og Real Madrid mætast í Meistaradeildinni á miðvikudags kvöld en Bale verður ekki með þar vegna meiðsla. Ronaldo mun hins vegar spila.

,,Auðvitað er hann leikmaður sem við þurfum að einbeita okkur að en allt liðið hjá þeim er ótrúlegt."

,,Þeir eru með Modric, Kroos og magnaða tekníska leikmenn sem geta spilað bæði stuttar og langar sendingar,"
sagði Rodgers.

,,Ég hef líka verið aðdáandi Sergio Ramos síðan hann kom upp úr unglingastarfi Sevilla og hann hefur síðan þá leikið 100 landsleik. Það er ótrúlegt afrek og hann er fljótur og sterkur leikmaður með sterkan persónuleika. Ég er mikill aðdáandi hans."
Athugasemdir
banner
banner
banner