Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 20. október 2014 05:55
Alexander Freyr Tamimi
Spánn í dag - Alfreð og félagar mæta Getafe
Alfreð gæti byrjað gegn Getafe.
Alfreð gæti byrjað gegn Getafe.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einn leikur fer fram í spænsku La Liga í kvöld og hefst hann klukkan 19:00.

Alfreð Finnbogason og félagar í Real Sociedad fá þá Getafe í heimsókn til sín.

Alfreð meiddist á öxl áður en tímabilið hófst og hefur komið inn á sem varamaður í síðustu leikjum Real Sociedad. Hann gæti þó vel verið að nálgast byrjunarliðið.

Real Sociedad er rétt fyrir ofan fallsæti, situr í sextánda sætinu en getur klifið upp í það þrettánda með sigir.

Getafe er í fjórtánda sæti en getur með sigri komist upp í tíunda.

Leikur dagsins á Spáni:
19:00 Real Sociedad - Getafe


Athugasemdir
banner
banner