Fotbolti.net
20.10.15 - 12:10
Hafliði Breiðfjörð

Kristín Erna Sigurlásdóttir í Fylki (Staðfest)

Frá undirskriftinni í Árbænum.

Frá undirskriftinni í Árbænum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Hertz
Framherjinn Kristín Erna Sigurlásdóttir er gengin í raðir Fylkis frá ÍBV en þetta var staðfest á fréttamannafundi í hádeginu. Samningurinn er til tveggja ára.
Kristín Erna er 24 ára gömul og hefur allan sinn feril spilað með ÍBV síðan hún lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki árið 2007.

Hún hefur leikið 125 leiki með ÍBV í deild og bikar og skorað í þeim 84 mörk. Auk þess hefur hún skorað 5 mörk í 9 leikjum með yngri landsliðum Íslands.

Kristín Erna er annar framherjinn sem Fylkir fær til sín í haust því áður kom Sonja Björk Jóhannsdóttir frá KR.

Hinn 23 ára gamli Eiður Benedikt Eiríksson tók við þjálfun liðsins í síðustu viku af Jörundi Áka Sveinssyni.
Kristín Erna með Eiði Benedikt þjálfara.

Kristín Erna með Eiði Benedikt þjálfara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.