Þriðja leikvika Meistaradeildar Evrópu er að baki og við fengum rosalega mörg mörk. Goal.com hefur opinberað úrvalslið vikunnar en stuðst er við upplýsingar Opta tölfræðiveitunnar. Vantar einhvern? Segðu þína skoðun í ummælakerfinu.
GIANLUIGI BUFFON | Juventus | Var á eldi í 1-0 sigri gegn Lyon. Varði meðal annars vítaspyrnu og sá til þess að stigin þrjú fóru til Juventus.
MIGUEL LAYUN | Porto | Spilaði frábærlega í hægri bakverði gegn Club Brugge og skoraði meðal annars.
SERGEI IGNASHEVICH | CSKA Moskva | Átti 19 hreinsanir gegn Mónakó. Flestar í Meistaradeildinni á þessu tímabili.
JOSHUA KIMMICH | Bayern München | 7 mörk í 11 leikjum á þessu tímabili. Skoraði í 4-1 sigrinum gegn PSV Eindhoven.
LIONEL MESSI | Barcelona | Þrenna í 4-0 sigri gegn Man City. Er markahæsti leikmaður á heimavelli í sögu Meistaradeildarinnar.
ALEX OXLADE-CHAMBERLAIN | Arsenal | Í harðri baráttu um sæti i Arsenal liðinu en sýndi gegn Ludogorets hvað býr í honum.
Athugasemdir