Varnarmaðurinn Gerard Pique hjá Barcelona spilar ekki næstu þrjár vikurnar vegna ökklameiðsla. Börsungar hafa staðfest þetta í tilkynningu sem barst í morgun.
Þá verður bakvörðurinn Jordi Alba frá í tvær vikur en báðir leikmennirnir fóru meiddir af velli þegar Barcelona slátraði Manchester City í Meistaradeildinni í gær, miðvikudag.
Þá verður bakvörðurinn Jordi Alba frá í tvær vikur en báðir leikmennirnir fóru meiddir af velli þegar Barcelona slátraði Manchester City í Meistaradeildinni í gær, miðvikudag.
Ljóst er að báðir munu missa af seinni viðureigninni við Manchester City sem verður á Englandi.
Börsungar mæta Valencia í La Liga á laugardag.
Þá mun Pique líklega missa af leik Spánverja gegn Makedóníu í undankeppni HM í nóvember og vináttulandsleik gegn Englandi.
Athugasemdir