Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 20. október 2016 21:45
Jóhann Ingi Hafþórsson
Pogba: Mjög mikilvæg keppni fyrir okkur
Paul Pogba fagnar marki í kvöld.
Paul Pogba fagnar marki í kvöld.
Mynd: Getty Images
„Við vildum vinna því þessi keppni er mikilvæg. Núna erum við á toppi riðilsins og okkur hlakkar til að spila næsta leik," sagði Paul Pogba eftir 4-1 sigur Manchester United á Fenerbache í kvöld en Pogba skoraði tvö mörk í leiknum.

Fyrri markið hans var úr víti en það seinna með frábæru skoti.

„Ég sagði við Rooney að ég vildi taka vítið og hann leyfði mér það. Ég er mjög ánægður með að hafa skorað og það skiptir mig máli að maður eins og Rooney treystir mér svo ég er mjög kátur."

„Mér finnst mjög gaman að spila með þessu liði. Þetta er rétt að byrja og við munum gera okkar besta til að komast á toppinn." sagði Pogba.
Athugasemdir
banner
banner