Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 20. október 2016 12:00
Elvar Geir Magnússon
Sagður ítalska útgáfan af Jurgen Klopp
Upggangur Sassuolo
Eusebio Di Francesco.
Eusebio Di Francesco.
Mynd: Getty Images
Uppgangur ítalska liðsins Sassuolo hefur verið hreint magnaður. Liðið vann Athletic Bilbao 3-0 í Evrópudeildinni í síðasta mánuði en fyrir tíu árum lék liðið í D-deild Ítalíu. Þetta er félag sem skiljanlega mikið hefur verið rætt um á Ítalíu.

Það var Massimiliano Allegri, núverandi stjóri Juventus, sem stýrði Sassuolo upp í B-deildina á sínum tíma en sá sem tók við liðinu og kom þeim upp í deild þeirra bestu heitir Eusebio Di Francesco.

Margir ættu að þekkja kauða enda lék hann 168 leiki fyrir Roma á sínum leikmannaferli og 12 leiki fyrir ítalska landsliðið. Hann er skírður í höfuðið á portúgölsku goðsögninni Eusebio sem lék fyrir Benfica.

Di Francesco er oft líkt við Jurgen Klopp, stjóra Liverpool. Aðallega vegna ástríðunnar sem hann sýnir á hliðarlínunni, skemmtilegu klæðaveli og hipstera gleraugunum sem hann ber.

Sassuolo náði árangri með því að spila skemmtilegan fótbolta og skyndilega voru stærri félög á Ítalíu farin að horfa til Di Francesco sem stýrði Sassuolo upp í ítölsku A-deildina 2013.

28. janúar var Di Francesco rekinn eftir slæma törn. Inn var ráðinn Alberto Malesani en hann entist ekki lengi og stjórn Sassuolo sá að hún hefði gert mistök. Þann 3. mars var hringt aftur í Di Francesco og hann endurráðinn. 17 stig í síðustu 12 leikjunum gerðu það að verkum að Sassuolo náði að halda sæti sínu.

Síðasta tímabil var það besta í sögu Sassuolo. Sjötta sætið sem gaf þátttökurétt í Evrópu, liðið lenti ofar en risar á borð við Milan og Lazio. Liðið er nánast aðeins byggt upp á ítölskum leikmönnum og hefur góða blöndu af yngri og eldri leikmönnum.

Sassuolo er sem stendur í tíunda sæti ítölsku deildarinnar en rekstur félagsins er í góðum skorðum og framundan leikur gegn Rapid Vín í Evrópudeildinni í kvöld.

Grein byggð á umfjöllun These Football Times
Athugasemdir
banner
banner
banner