Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 20. október 2016 08:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Totti gæti skorað 100. markið í leik númer 100
Francesco Totti fagnar
Francesco Totti fagnar
Mynd: Getty Images
Francesco Totti mun spila sinn 100. Evrópuleik með Roma er ítalska liðið fær Austria Vienna í heimsókn í Evrópudeildinni í kvöld.

Roma er með fjögur stig eftir tvo leiki í riðlinum sínum hingað til en Luciano Spalletti, þjálfari liðsins, er spenntur að sjá Totti ná áfanganum.

„Totti hefur skorað 99 mörk síðan ég tók við og mig langar mikið að hann nái marki númer 100. Hann er einnig að fara að spila sinn 100. leik í Evrópukeppni svo þetta verður sérstakur leikur," sagði Spalletti.

„Það er staðfest að Totti mun spila því hann getur ráðið úrslitum. Hann spilar."
Athugasemdir
banner
banner
banner