“Bara geggjuð sko. Get eiginlega ekki lýst því. Þetta er bara snilld,” sagði Elín Metta Jensen, framherji Íslands, um tilfinninguna eftir sögulegan sigur gegn Þýskalandi í undankeppni HM 2019 í dag.
Lestu um leikinn: Þýskaland 2 - 3 Ísland
Það er ekki margt stærra en að vinna Þýskaland á útivelli.
“Nei og það er líka langt síðan að íslenska landsliðið vann Þýskaland þannig að þetta er mjög stór stund."
Elín Metta var ekki fædd þegar Ísland skoraði síðast mark gegn landsliði Þýskalands!
“Það er ekki leiðinlegt að bæta úr því í dag með þremur mörkum. Það er ágætt.”
“Jú, þær voru sterkar en mér fannst bara baráttan okkar alveg jafna það og mér fannst við bara svara þeim vel inná vellinum. Ég gat ekki fundið fyrir að þær væru eitthvað mikið sterkari, alls ekki,” sagði Elín Metta þegar hún var spurð að því hvernig var að takast á við þessa stóru og líkamlega sterku varnarmenn þýska liðsins.
Nánar er rætt við Elínu í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir