Freysi á bekknum í dag. Hann segir að leikurinn í dag hafi verið nánast fullkominn hjá íslenska liðinu.
„Vinnan sem ég legg á mig er ekki neitt nema leikmenn hafi trú á því og fylgi því eftir sem maður er að gera. Þær spiluðu nánast fullkominn leik í dag og eiga hrós skilið," segir landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson eftir sigurinn magnaða gegn Þýskalandi.
Lestu um leikinn: Þýskaland 2 - 3 Ísland
„Það var lítið sem kom á óvart við leik Þýskalands. Leikmenn okkar voru mjög einbeittir og spennustigið fullkomið. Þær voru hugrakkar og kröftugar en báru virðingu fyrir þeim. Ég fann það alla vikuna að þær voru á réttum stað með þetta."
Freyr viðurkennir að hafa verið stressaður í lokin.
„Ég var ekkert stressaður fyrr en síðustu fimm mínúturnar. Þegar þær skora 3-2 markið og það kemur uppbótartími, þá leið mér bara illa. Viðurkenni það. Ég hafði enga stjórn þá og þær voru að negla inn í teiginn. Ég vissi að Þýskaland hefur fengið fjögur víti í síðustu fimm leikjum og maður veit ekki hvað dómarinn tekur upp á."
„Við unnum sögulegan sigur gegn einu besta liði í heimi en það gefur okkur ekki farseðilinn á HM, það gefur okkur góða stöðu og vonandi mikið sjálfstraust."
Sjáðu viðtalið við Freysa í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir