Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   fös 20. október 2017 17:08
Mist Rúnarsdóttir
Wiesbaden
Glódís: Framherjar og miðjumenn eins og brjálæðingar
Byrjunarlið Íslands í dag.
Byrjunarlið Íslands í dag.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
„Þetta er ekki bara afrek í sögulegu samhengi heldur skiptir þessi leikur öllu máli fyrir okkur," sagði Glódís Perla Viggósdóttir varnarmaður Íslands eftir frækinn 2-3 sigur á Þýskalandi í undakeppni HM 2019 í dag.

Lestu um leikinn: Þýskaland 2 -  3 Ísland

„Nú fáum við sjálfstraust og fengum að sýna það sem vitum að hefur búið í liðinu í langan tíma. Það er geggjað að fá að vera partur af þessu," bætti hún við en hvað olli því að þetta small algjörlega í dag?

„Ég veit ekki hvað það var en taktíkin var 100% og allir voru 100%. Ég talaði um það fyrir leik að ef við ætluðum að vinna þá þyrftu allir að vera með 100% einbeitingu og form og það datt allt með okkur í dag. Það er frábært."

Ísland komst yfir í tvígang í leiknum og leiddi lengi í seinni hálfleik 1-3 eða þar til Þjóðverjar skoruðu 2-3 í lokin og spennan varð mikil.

„Það var alveg magnað að spila þennan leik. Þrátt fyrir að þær jafni eftir að við komumst yfir þá hefur maður dúndrandi trú á þessu liði. Ég vissi að við kæmum til baka, framherjarnir og miðjumennirnir unnu eins og brjálæðingar til að skora mörk númer 2 og 3. Þetta voru líka frábær mörk, ekki einhver amatour mörk heldur geggjuð mörk og við hefðum getað skorað ennþá fleiri."

Nánar er rætt við hana í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner