Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fös 20. október 2017 17:01
Mist Rúnarsdóttir
Wiesbaden
Ingibjörg: Fékk feita sýru í lappirnar
Ingibjörg í leiknum í dag.
Ingibjörg í leiknum í dag.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
„Ég er í smá sjokki, þetta er geggjað," sagði Ingibjörg Sigurðardóttir varnarmaður Íslands eftir 2-3 sigur liðsins á Þýskalandi í undankeppni HM 2019.

Lestu um leikinn: Þýskaland 2 -  3 Ísland

„Þetta var lengsti leikur sem ég hef spilað og ég er ánægð með að hann er búinn en djöfull var þetta gaman," bætti hún við.

Ísland komst í 3-1 en Þýskaland minnkaði muninn í 2-3 seint í leiknum og mikil spenna var fram að lokaflautinu. En hvað skóp sigurinn?

„Bara hausinn á okkur, við vorum allar búnar á því í endann en keyrðum hvora aðra áfram. Ef einhver var aðeins að detta út þá var bara kippt í hana og allt fór í gang aftur."

En höfðuð þið trú á þessu fyrir leik?

„Auðvitað, við höfum trú á því að við getum unnið alla. Við vitum að við erum ekki betra liðið, þær eru hæfileikaríkari en við en við höfum viljann og það fleytir okkur langt."

Spennan í lokin var óbærileg þegar þýska liðið fór allt í sókn en hvernig var að spila lokamínúturnar?

„Þær voru mjög erfiðar.Ég fékk feita sýru í lappirnar við að hlaupa á eftir henni og hélt að ég væri bara búin en við náðum einhvern veginn að klára þetta og ég er fáránlega glöð með þetta."
Athugasemdir
banner
banner
banner