Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 20. nóvember 2014 17:00
Magnús Már Einarsson
Buffon hjá Juventus þangað til hann verður 39 ára
Buffon lætur John Arne Riise finna fyrir því.
Buffon lætur John Arne Riise finna fyrir því.
Mynd: Getty Images
Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, hefur skrifað undir þriggja ára framlengingu á samningi sínum við félagið.

Þetta þýðir að Buffon verður hjá Juventus þangað til að hann verður 39 ára gamall.

Buffon lék sinn fyrsta leik í Serie A árið 1995 en hann hefur leikið 400 deildarleiki með Juventus síðan árið 2001.

Varnarmaðurinn Giorgio Chiellini hefur einnig framlengt samning sinn við Juventus um fjögur ár en hann er þrítugur.
Athugasemdir
banner
banner
banner