Gylfi Þór Sigurðsson fékk í dag verðlaun fyrir að vera leikmaður október mánaðar hjá Swansea.
Gylfi hefur farið frábærlega af stað með Swansea eftir að hann kom aftur til félagsins frá Tottenham í sumar.
Gylfi hefur farið frábærlega af stað með Swansea eftir að hann kom aftur til félagsins frá Tottenham í sumar.
Í október lagði Gylfi upp bæði mörk Swansea í 2-2 jafntefli gegn Newcastle.
Þá átti hann stóran þátt í mörkum Swansea í 2-0 sigri á Leicester.
Swansea er í 5. sæti í ensku úrvalsdeildinni en liðið heimsækir Englandsmeistara Manchester City um helgina.
Athugasemdir