Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 20. nóvember 2014 18:17
Elvar Geir Magnússon
Mamma Adebayor beitir nornagöldrum á hann
Emmanuel Adebayor.
Emmanuel Adebayor.
Mynd: Getty Images
Emmanuel Adebayor, sóknarmaður Tottenham og Tógó, segir að móðir sín noti 'juju', nornagaldra, til að reyna að binda enda á feril sinn.

Samband hans við móður sína er ekki gott og endaði með því að hann sparkaði henni út úr einu af húsi sínu.

Systir Adebayor segir hann ekki svara símtölum frá fjölskyldu sinni.

„Hann svarar ekki móður okkar og það er erfitt fyrir hana að kyngja því. Henni þykir mjög vænt um hann og vill sjá hann. Þetta snýst ekki um peninga," segir systirin. Hún segir að móðirin eigi fyrir mat í dag með því að selja varning við landamæri Gana og Tógó.

Adebayor hefur sjálfur aðra sögu að segja en hann heldur því fram að móðir sín og systir séu að reyna að binda enda á feril sinn með göldrum.

„Hvernig get ég talað við móður sem hefur ásamt systur minni beitt nornagöldrum á mig?" segir Adebayor.

Stórfurðulegt mál.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner