Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 20. nóvember 2014 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Nani að gera góða hluti í Portúgal
Mynd: Getty Images
Nani er búinn að skora fimm mörk fyrir Sporting Lisbon frá komu sinni á láni frá Manchester United í ágúst.

Portúgalinn hefur verið að gera frábæra hluti og gæti átt framtíð fyrir sér hjá Man Utd. Hann er orðaður við endurkomu til Old Trafford í janúar.

Nani var partur af samkomulagi sem kom argentínska varnarmanninum Marcos Rojo frá Sporting til Rauðu djöflanna.

,,Ég áttaði mig á því að tækifærunum fór fækkandi hjá United þannig að ég varð að taka ákvörðun," sagði Nani.

,,Ég var búinn að vera í 7 ár á Old Trafford og þurfti aðeins að skipta um andrúmsloft til að finna sjálfstraustið mitt.

,,Louis van Gaal gaf mér valmöguleika. Ég hefði getað orðið eftir en ákvað að velja besta valkostinn. Ég tel mig hafa valið rétt.

,,Mér finnst aftur gaman að spila fótbolta, þetta var hætt að vera skemmtilegt undir lokin hjá United."

Athugasemdir
banner
banner