Á aðalafundi Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands í síðustu viku voru Rúnar Páll Sigmundsson og Ólafur Þór Guðbjörnsson verðlaunaðir sem þjálfarar ársins en þeir stýrðu báðir Stjörnunni til Íslandsmeistaratitils í sumar.
Jón Hálfdán Pétursson, Kjartan Stefánsson og Þórður Einarsson hlutu allir viðurkenningu fyrir vel unnin störf við þjálfun yngri flokka á aðalfundi KÞÍ. Allir hafa þeir lagt mikinn metnað í þjálfunina og verið knattspyrnuþjálfurum til sóma við störf sín.
Ein breyting varð á stjórn KÞÍ á aðalfundi félagsins. Ómar Jóhannsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa í stjórn KÞÍ eftir að hafa verið gjaldkeri undanfarin sextán ár. Ómar var sæmdur gullmerki KÞÍ og einnig sæmdur silfurmerki KSÍ við sama tækifæri.
Sigurður Þórir Þorsteinsson var kjörinn formaður til tveggja ára. Kristján Guðmundsson og Sigurður Víðisson voru kosnir stjórnarmenn til tveggja ára. Sigurður er nýr stjórnarmaður. Davíð Snorri Jónsson og Halldór Þ Halldórsson voru kosnir varamenn í stjórn KÞÍ til eins árs.
Athugasemdir