Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. desember 2014 16:07
Arnar Geir Halldórsson
Alfreð í byrjunarliði Real Sociedad
Alfreð byrjar
Alfreð byrjar
Mynd: Getty Images
Alfreð Finnbogason er í byrjunarliði Real Sociedad þegar liðið heimsækir Levante í La Liga klukkan 17.

Alfreð var á skotskónum í vikunni þegar Sociedad sló Real Oviedo úr keppni í bikarnum en Alfreð skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 sigri. Alfreð á enn eftir að skora deildarmark fyrir Sociedad.

David Moyes heldur tryggð við Alfreð og stillir honum upp í fremstu víglínu en Carlos Vela, stjarna liðsins, er ekki í leikmannahópnum í dag.

Real Sociedad og Levante eru með jafnmörg stig í 14 og 15.sæti deildarinnar en þetta er síðasti leikur liðanna fyrir jólafrí.
Athugasemdir
banner
banner
banner