Yaya Sanogo, framherji Arsenal á Englandi, verður lánaður frá félaginu í janúar en BBC greinir frá þessu.
Sanogo, sem er 21 árs gamall, hefur spilað reglulega með Arsenal að undanförnu en svo virðist sem að Arsene Wenger, stjóri liðsins, ætli að lána hann frá félaginu til að gefa honum meiri reynslu.
BBC greinir frá því að Wenger vilji halda Sanogo í ensku úrvalsdeildinni en hann ætlar sér að lána hann í annað úrvalsdeildarfélag.
Hann vill fylgjast með þróun leikmannsins og telur því að best sé að lána hann frá félaginu.
Sanogo er búinn að spila fimm leiki með Arsenal á þessari leiktíð en honum hefur þó einungis tekist að skora einu sinni.
Athugasemdir