Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. desember 2014 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Manchester United á Villa Park
Robin van Persie vonast til að halda áfram að raða inn mörkum
Robin van Persie vonast til að halda áfram að raða inn mörkum
Mynd: Getty Images
Enski boltinn rúllar yfir jólin eins og öll ár en það er nóg um að vera í dag en Manchester City og Crystal Palace opna daginn.

Joe Hart, markvörður Manchester City, framlengdi við félagið í gær og fagnar því með því að spila gegn Crystal Palace í hádeginu. Englandsmeistararnir freista þess að landa þremur stigum á Etihad eins og vaninn er.

Hull fær Gylfa Þór Sigurðsson og félaga í Swansea City í heimsókn en þar er um hörkuslag að ræða.

QPR og WBA mætast í öflugum leik og á sama tíma fær Aston Villa lið Manchester United í heimsókn en lærisveinar Louis van Gaal eru á flugi.

Spútniklið Southampton vonast til þess að komast á sigurbraut á nýjan leik en liðið fær Everton í heimsókn.

Tottenham mætir þá Burnley og West Ham mætir Leicester.

Leikir dagsins:
12:45 Manchester City - Crystal Palace
15:00 Hull - Swansea
15:00 QPR - WBA
15:00 Aston Villa - Manchester United
15:00 Southampton - Everton
15:00 Tottenham - Burnley
15:00 West Ham - Leicester
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner