Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 20. desember 2014 20:46
Jóhann Ingi Hafþórsson
Rodgers hrósar Lazar Markovic
Brendan Rodgers hefur mikið álit á Lazar Markovic.
Brendan Rodgers hefur mikið álit á Lazar Markovic.
Mynd: Getty Images
Lazar Markovic er loksins að komast inn í enska boltann og Liverpool verður betra á því, segir Brendan Rodgers, þjálfari liðsins.

Markovic kom til Liverpool á 20 milljónir punda frá Benfica í sumar en hann átti erfiða byrjun sem leikmaður Liverpool þar sem liðinu hefur ekki gengið sem skildi.

Hann átti þó góðan leik á vinstri kantinum og skoraði mark gegn Bournemouth í enska deildarbikarnum á miðvikudag.

,,Þetta var frábær afgreiðsla. Hann var frábær í leiknum. Hann var orkumikill og með mikil gæði og ógnaði mikið," sagði Rodgers um kappan.

,,Hann spilaði 15 mínútur gegn Basel og fékk rautt spjald, það voru mikil vonbrigði því hann hafði komið vel inn í leikinn. Það er Markovic sem við þekkjum."

,,Hann er aðeins tvítugur og hann á bara eftir að vera betri, hann er spennandi leikmaður," sagði Rodgers að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner