Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. desember 2014 14:19
Arnar Geir Halldórsson
Smávægileg meiðsli að hrjá Gylfa
Gylfi getur tekið því rólega í dag
Gylfi getur tekið því rólega í dag
Mynd: Getty Images
Gylfi Sigurðsson er ekki í leikmannahópi Swansea sem heimsækir Hull City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Samkvæmt heimasíðu Swansea er Gylfi meiddur en meiðslin eru ekki talin alvarleg. Garry Monk hefur væntanlega ekki viljað taka neina sénsa með Gylfa enda margir leikir á stuttum tíma framundan.

Swansea leikur við Aston Villa á öðrum degi jóla og heimsækir Anfield mánudaginn 29.desember.

Wilfried Bony er á varamannabekknum og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig Swansea tekst til án þessara tveggja leikmanna sem hafa haldið uppi sóknarleik liðsins á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner