Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. desember 2014 16:53
Arnar Geir Halldórsson
Spánn: Barcelona valtaði yfir Cordoba
Suarez og Pedro sáu um Cordoba
Suarez og Pedro sáu um Cordoba
Mynd: Getty Images
Barcelona 5 - 0 Cordoba
1-0 Pedro ('2 )
2-0 Luis Suarez ('53 )
3-0 Gerard Pique ('80 )
4-0 Lionel Messi ('82 )
5-0 Lionel Messi (´90)

Barcelona fékk Cordoba í heimsókn í dag en Cordoba er í næstneðsta sæti deildarinnar. Börsungar áttu ekki í neinum vandræðum í dag en Pedro Rodriguez kom Barcelona yfir strax á 2.mínútu leiksins.

Luis Suarez tvöfaldaði forystuna þegar hann skoraði eftir sendingu frá Pedro. Næstur á blað var Gerard Pique en hann kom Barcelona í 3-0 á 80.mínútu. Lionel Messi negldi svo síðasta naglann í kistu Cordoba með tveim mörkum. Lokatölur 5-0.

Barcelona verður í 2.sæti deildarinnar fram á nýtt ár en þetta er síðasta umferð Spánarsparksins fyrir jólafrí.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner