Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   lau 20. desember 2014 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Suarez: Er ekki háður mörkum
Luis Suarez hefur loks skorað deildarmark fyrir Barcelona.
Luis Suarez hefur loks skorað deildarmark fyrir Barcelona.
Mynd: Getty Images
Luis Suarez segist ekki vera háður mörkum og sé aðeins sáttur við að hjálpa liðinu en hann skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Barcelona í 5-0 sigri liðsins á Cordoba í dag.

Suarez hafði spilað átta deildarleiki áður en markið loksins kom. Suarez hafði áður skorað tvisvar í Meistaradeildinni með Barcelona.

,,Ég kyssti fingurna fyrir eiginkonuna og börnin tvö sem eru heima," sagði Suarez um fögnuð sinn er hann skoraði.

,,Við gerðum jafntefli við Getafe og það pirraði okkur. Við viljum berjast um titilinn. Það er mikilvægt að skora, ég er framherji og ég á að skora en ég er glaður að geta hjálpað liðinu. Það er mikilvægast að liðinu gengur vel og ég er ekki háður því að skora mörk."

,,Þú vinnur leiki með að skapa góð færi. Ég var sár að hafa ekki skorað fyrr en ég er mjög ánægður að vera hér og spila fyrir Barcelona," sagði Suarez að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner