Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 21. janúar 2017 21:35
Kristófer Kristjánsson
Afríkukeppnin: Gana með sterkan sigur
Asamoah Gyan
Asamoah Gyan
Mynd: Getty Images
Gana og Egyptaland eru sigurvegarar kvöldins í Afríkukeppninni.

Egyptaland hafði betur gegn Úganda og Gana vann Malí, báðir leikir fóru 1-0.

Fyrrum leikmaður Sunderland, Asamoah Gyan sá um að skora mark Gana í fyrri hálfleik og eru þeir nú með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína.

Egyptar eru svo með fjögur stig eftir nauma sigur á Úganda. Abdalla El Said skoraði markið í blálokin.

Gana 1 - 0 Malí
1-0 Asamoah Gyan ('21)

Egyptaland 1 - 0 Úganda
1-0 Abdalla El Said ('89)
Athugasemdir
banner
banner
banner