Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. janúar 2017 22:30
Kristófer Kristjánsson
Carroll ekki alvarlega meiddur
Andy Carroll hefur verið heitur
Andy Carroll hefur verið heitur
Mynd: Getty Images
Andy Carroll er ekki eins meiddur og margir óttuðust en hann þurfti að fara af velli í 3-1 sigri West Ham á Middlesbrough í dag.

Carroll skoraði tvennu í leiknum og hefur hann verið sjóðandi heitur undanfarið.

Stuðningsmenn West Ham voru því allt annað en spenntir er hann þurfti að fara meiddur af velli en hann hefur meiðst ansi oft á ferli sínum hingað til.

„Ég er góður og ég hlakka til að taka þátt í næsta leik. Ég hef ekkert æft í vikunni fyrir utan að ég mætti í ræktina tvisvar," sagði Carroll um líðan sína.

West Ham hefur nú unnið báða leiki sína eftir að Dimitri Payet fór í fýlu og neitaði að spila fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner