Heimild: Sky Sports
Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir Nathaniel Clyne og Jordan Henderson geti mögulega báðir spilað gegn Swansea í hádeginu í dag.
Clyne, sem spilar í stöðu hægri bakvarðar, hefur misst af síðustu tveimur leikjum Liverpool, gegn Manchester United í deildinni og svo gegn Plymouth í FA-bikarnum.
Clyne, sem spilar í stöðu hægri bakvarðar, hefur misst af síðustu tveimur leikjum Liverpool, gegn Manchester United í deildinni og svo gegn Plymouth í FA-bikarnum.
Henderson meiddist á hælnum gegn Manchester City á gamlársdag og hann spilaði allan leikinn gegn Manchester United. Hann var þó hvíldur gegn Plymouth í vikunni.
„Þetta er allt á góðri leið," sagði Klopp á blaðamannafundi í gær.
„Clyne gæti spilað. Hann hefur farið á tvær hlaupaæfingar til þess að sjá hvort að hann gæti þolað sársaukann. Hann er að verða góður og það sama má segja um Hendo."
Athugasemdir