Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. janúar 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: KSÍ.is 
Dómarar fengu FIFA-merki afhent
Mynd: Vefur KSÍ
Hópur íslenskra dómarar fengu á dögunum afhent FIFA-merki sem staðfestir að þeir séu alþjóðlegir dómarar.

„Íslenskir dómarar fá margvísleg verkefni erlendis á ári hverju og hvetjum við alla sem hafa áhuga á að fá nánari upplýsingar um hvernig á að komast í dómgæslu að senda tölvupóst á [email protected] og eru konur sérstaklega hvattar til að kynna sér tækifærin sem felast í því að vera dómari," segir á vef KSÍ.

Á myndinni má sjá alþjóðadómara frá Íslandi fyrir árið 2017.

Fremri röð frá vinstri: Bryngeir Valdimarsson, Þóroddur Hjaltalín, Rúna Kristín Stefánsdóttir, Kristinn Jakobsson, formaður dómaranefndar KSÍ, Gunnar Jarl Jónsson, Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

Aftari röð frá vinstri: Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, Oddur Helgi Guðmundsson, Birkir Sigurðarson, Jóhann Gunnar Guðmundsson, Frosti Viðar Gunnarsson, Andri Vigfússon, Gylfi Már Sigurðsson, Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson, Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ.Á myndina vantar Þorvald Árnason.
Athugasemdir
banner
banner