Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. janúar 2017 21:59
Kristófer Kristjánsson
Ítalía: Napoli með sigur á Milan
Jose Callejon skoraði fyrir Napoli.
Jose Callejon skoraði fyrir Napoli.
Mynd: Getty Images
Napoli skoraði tvö mörk á fyrstu níu mínútunum gegn AC Milan í ítölsku deildinni í dag og dugði það þeim til sigurs.

Juraj Kucka minnkaði muninn fyrir Milan áður en flautað var til hálfleiks en ekkert var skorað í seinni hálfleik.

Fyrr í dag vann Fiorentina svo öruggan 3-0 sigur á Chievo þar sem Christian Tello, Khouma Babacar og Federico Chiesa skoruðu.

Napoli er í 3. sæti, með jafn mörg stig og Roma sem eru í 2. sæti en Milan er í 5. sæti, þrem stigum á eftir Lazio.

Chievo 0 - 3 Fiorentina
0-1 Cristian Tello ('18 )
0-2 Khouma Babacar ('52 , víti)
0-3 Federico Chiesa ('90 )

Milan 1 - 2 Napoli
0-1 Lorenzo Insigne ('6 )
0-2 Jose Callejon ('9 )
1-2 Juraj Kucka ('37 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner