banner
   lau 21. janúar 2017 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: BBC 
Moyes: Að kaupa leikmenn mun ekki breyta miklu
David Moyes.
David Moyes.
Mynd: Getty Images
David Moyes, stjóri Sunderland, er ekki viss um að nýjir leikmenn muni breyta miklu fyrir sitt lið, en hann hefur ekki mikinn pening til þess að fjárfesta í gæðaleikmönnum.

Sunerland er sem stendur í næst-neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Moyes gæti reynt að kaupa nýja leikmenn, en hann telur að þeir muni ekki breyta miklu.

„Ég væri að grínast ef ég myndi segja að þeir leikmenn sem við myndum kaupa, myndu breyta miklu fyrir okkur," sagði Moyes.

„Við gætum örugglega ekki fengið þannig leikmann, sem myndi breyta hlutunum fyrir okkur, og höfum örugglega ekki fjárhagsstöðuna í það."

„Að segja að leikmennirnir sem við munum fá, muni breyta miklu fyrir okkur, held ég, að sé ekki rétt."
Athugasemdir
banner
banner
banner