Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 21. janúar 2017 23:30
Kristófer Kristjánsson
Mynd: Mike Dean í ruglinu í Championship deildinni
Mike Dean er í ruglinu þessa dagana.
Mike Dean er í ruglinu þessa dagana.
Mynd: Getty Images
Mike Dean var sendur niður í Championship deildina eftir nokkra slappa leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni.

Hann dæmdi leik Leeds United og Barnsley í gær þar sem hann hélt áfram þar sem frá var horfið.

Í seinni hálfleik fékk Leeds vítaspyrnu er Marc Roberts fékk boltann í hendina og Dean benti á punktinn.

Myndin hér að neðan er tekin á sama augnabliki og Roberts fær boltann í hendina og er hann langt fyrir utan teig og hefði þetta því átt að vera aukapsyrna.

Barnsley vann leikinn 3-2, þrátt fyrir þennan kjánalega dóm.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner