Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. janúar 2017 17:31
Kristófer Kristjánsson
Rooney: Er mjög stoltur og ánægður
Rooney og félagar fanga markinu.
Rooney og félagar fanga markinu.
Mynd: Getty Images
„Þetta þýðir ansi mikið fyrir mig. Ég er mjög stoltur og ánægður en það er erfitt að vera of glaður vegna úrslitanna. Þetta er samt eitthvað sem ég bjóst ekki við þegar ég kom til félagsins. Vonandi get ég skorað enn fleiri mörk," sagði Wayne Rooney eftir að hafa bætt markamet Sir Bobby Chartlon í dag og er hann orðinn markahæsti leikmaður í sögu Manchester United.

Markið kom í uppbótartíma og tryggði hann Manchester United eitt stig en lokatölur voru 1-1.

„Það hafa margir heimsklassa leikmenn spilað fyrir félagið og ég er stoltur að fá að vera leikmaður Manchester United og sérstaklega stoltur að hafa bætt þetta met."

„Þetta gæti verið mikilvægt stig eftir leiktíðina. Það er gott að tapa ekki. Það er mikið eftir og margt getur gerst. Við verðum að halda áfram að safna stigum," sagði Rooney.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner