banner
   sun 21. janúar 2018 18:52
Ívan Guðjón Baldursson
Pellegrino: Erum á réttri leið
Mynd: Getty Images
Mauricio Pellegrino er ánægður með sína menn í Southampton eftir 1-1 jafntefli við Tottenham í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Southampton er í fallsæti en Pellegrino hefur mikla trú á því að gengi liðsins breytist á næstu vikum.

„Við erum á réttri leið. Síðustu fjórir leikir hafa verið góðir en því miður erum við ekki að ná inn stigunum sem frammistöðurnar verðskulda," sagði Pellegrino.

„Hver einasti deildarleikur er úrslitaleikur í fallbaráttunni og við verðum að berjast með kjafti og klóm.

„Ég er með gæðamikinn leikmannahóp, það vantar bara smá uppá sjálfstraustið og þá geta stigin farið að detta inn.

„Við erum í vandræðum og fallbaráttu núna en staðan getur verið orðin allt önnur eftir þrjár eða fjórar vikur. Það eru bara nokkur stig á milli 10 eða 11 liða í neðri hlutanum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner