Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. janúar 2018 10:00
Gunnar Logi Gylfason
Heimild: Mirror 
Pogba krefst hærri launa
Pogba vill hærri laun
Pogba vill hærri laun
Mynd: Getty Images
Paul Pogba er ekki lengur sáttur með að vera "bara" með 200 þúsund pund á viku eftir mikið tal um biluð vikulaun sem Manchester United er tilbúið til að borga Alexis Sanchez.

Nú er Mino Raiola, umboðsmaður Pogba og fleiri knattspyrnustjarna, tilbúinn að láta félagið vita að skjólstæðingur sinn sætti sig ekki við núverandi vikulaun.

Pogba finnst hann eiga að vera á pari við tilvonandi liðsfélaga sinn og er líklega með rétta umboðsmanninn til að fá þess ósk uppfyllta.
Raiola fékk Man Utd til að borga Zlatan Ibrahimovic 367 þúsund pund á viku þegar hann gekk til liðs við liðið árið 2016.

Athugasemdir
banner
banner
banner