Lyon lagði PSG að velli í franska boltanum í dag með tveimur mörkum gegn einu.
PSG er með átta stiga forystu á toppnum og er Lyon í öðru sæti.
PSG er með átta stiga forystu á toppnum og er Lyon í öðru sæti.
Nabil Fekir gerði fyrsta mark leiksins beint úr aukaspyrnu og jafnaði Laywin Kurzawa með glæsilegu skoti þar sem hann tók boltann viðstöðulaust á lofti.
Memphis Depay gerði sigurmarkið þegar 30 sekúndur voru eftir og er hægt að sjá markið hér fyrir neðan.
Öll mörk leiksins í dag voru mögnuð og er hægt að skoða með að smella hér.
Athugasemdir