Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 21. febrúar 2017 06:00
Magnús Már Einarsson
Æfingaleikir: Úlfarnir með tvo sigra
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Úlfarnir, nýtt lið í 4. deildinni, hefur unnið tvo æfingaleiki undanfarna daga.

Liðið sigraði KFR fyrst 5-4 á heimavelli þann 10. febrúar og síðastliðinn föstudag sigraði liðið Stál-úlf 3-2.

Úlfarnir er skipað mörgum fyrrum leikmönnum Fram en liðið leikur heimaleiki sína á Framvelli í Úlfarsárdal.

Úlfarnir 5 - 4 KFR
Markaskorarar Úlfanna: Steinar Haraldsson 2, Gunnar Axel Böðvarsson 2, Axel Arnar Finnbjörnsson.

Úlfarnir 3 - 2 Stál-Úlfur
Markaskorarar Úlfanna: Arnór Finnbjörnsson 2, Steinar Haraldsson.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner