Notaði tækifæri og skaut á Harry Kane
Harry Kane tók að sér nýtt hlutverk í kvöld. Kane kynnti verðlaun á bresku BRIT-tónlistarverðlaunahátíðinni.
Kane sem er vanari því að skora mörk með Tottenham steig á svið með söngkonunni vinsælu Camilu Cabello. En áður en hann kom inn á svið var hann kynntur inn af grínistanum Jack Whitehall.
Þess má geta að Whitehall er harður stuðningsmaður Arsenal, sem er helsti erkifjandi Tottenham.
Whitehall notaði því tækifærið og skaut á Kane.
„Næstu kynnar eru poppstjarna og sóknarmaður Tottenham sem þýðir að BRIT-verðlaunin sem hann afhendir í kvöld verður líklega eini titilinn sem hann snertir á þessu tímabili."

Svo gekk Kane inn á sviðið en myndband af þessu er hér að neðan.
Jack Whitehall ripping Harry Kane at the Brit Awards... 😂 pic.twitter.com/Gkbh5XP4LF
— Mike Sanz (@mikesanz19) February 21, 2018
A great night at the #Brits and an honour to present an award - @Camila_Cabello. #BritAwards pic.twitter.com/f6w2PaXQfU
— Harry Kane (@HKane) February 21, 2018
Athugasemdir