Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 21. febrúar 2018 13:30
Elvar Geir Magnússon
Raheem Sterling gaf systur sinni hús í afmælisgjöf
Raheem Sterling sýndi aðdáendum frá afmælisgleðinni á Instagram.
Raheem Sterling sýndi aðdáendum frá afmælisgleðinni á Instagram.
Mynd: Instagram
Raheem Sterling, leikmaður Manchester City, er ekki bara gjafmildur fyrir liðsfélaga sína innan vallar heldur er hann einnig gjafmildur fyrir fjölskyldu sína utan vallarins.

Systir hans átti 27 ára afmæli og haldið var upp á afmælið í afmælisgjöfinni frá honum!

Bundið var fyrir augun á Kima-lee og farið með hana í hús í London þar sem vinir og fjölskylda biðu eftir henni.

Þar var henni svo tilkynnt að hún væri eigandi hússins, það væri afmælisgjöf frá litla bróður.

Kima-lee táraðist af gleði og gaf bróður sínum innilegt faðmlag fyrir þessa rausnarlegu gjöf.

Raheem Sterling er 23 ára landsliðsmaður Englands og spilar stórt hlutverk fyrir verðandi Englandsmeistara Manchester City.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner