Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 21. febrúar 2018 14:00
Magnús Már Einarsson
Ronaldo hvíldur fyrir PSG leikinn - Þrír leikmenn Real tæpir
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, hefur ákveðið að hvíla Cristiano Ronaldo í leiknum gegn Leganes í kvöld.

Markvörðurinn Keylor Navas fær einnig hvíld.

Toni Kroos, Marcelo og Luka Modric eru einnig fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

Zidane er með annað augað á síðari leiknum gegn PSG í Meistaradeildinni eftir tvær vikur en hann vill hafa Ronaldo upp á sitt besta þar.

Kroos, Marcelo og Modric eru allir tæpir fyrir leikinn gegn PSG og í kapphlaupi við tímann.
Athugasemdir
banner
banner