Fotbolti.net
21.03.16 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Myndband: Selfyssingur skallaði KA-mann

Stefán Ragnar Guðlaugsson.

Stefán Ragnar Guðlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA, birti í dag myndband á Facebook síðu sinni af atviki í leik KA og Selfoss í Lengjubikarnum á laugardag.

Atvikið átti sér stað á 56. mínutu leiksins en þá fór Elfar Árni Aðalsteinsson, framherji KA, í Vigni Jóhannesson, markvörð Selfyssinga, eftir að hann hafði handsamað boltann.
Stefán Ragnar Guðlaugsson, fyrirliði Selfyssinga, brást illa við en hann skallaði Elfar Árna.

Vilhelm Adolfsson, dómari leiksins, ákvað hins vegar að gefa Stefáni Ragnari ekki rauða spjaldið.

Stefán Ragnar fékk gult spjald fyrir atvikið og Elfar Árni fékk einnig gult spjald fyrir brotið á Vigni.

KA hafði betur í leiknum 2-1 en Ásgeir Sigurgeirsson skoraði sigurmarkið á 94. mínútu.

Hér að neðan má sjá atvikið umrædda.

Þetta var gult spjald á báða leikmenn. Þetta yrði langt bann í flestum löndum í kringum okkur en gult hér. Stundum skil ég ekki þessa dómara en það er önnur ella. Jóhannes Valgeirsson er þetta ekki í flestum tilfellum rautt spjald?

Posted by Saevar Petursson on Monday, March 21, 2016
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.