Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. mars 2017 07:30
Stefnir Stefánsson
Giroud: Allir leikmennirnir standa við bakið á Wenger
Olivier Giroud er ánægður með Wenger
Olivier Giroud er ánægður með Wenger
Mynd: Getty Images
Framherji Arsenal, Olivier Giroud segir að allir leikmenn liðsins standi við bakið á Arsene Wenger stjóra liðsins. Þá segir hann einning að þeir vilji að hann haldi áfram með liðið.

Wenger, sem hefur stýrt Arsenal liðinu síðastliðin 21 ár, sagði í síðustu viku að hann hefði nú þegar gert upp hug sinn varðandi framtíð sína hjá félaginu.

Samningur hans við félagið rennur út að þessu tímabili loknu. Hann er undir gríðarlegri pressu frá stuðningsmönnum félagsins sem eru margir hverjir ekki ánægðir með hans störf, og vilja hann burt.

„Við viljum að sjá hann skrifa undir nýjann samning og við viljum að hann haldi áfram með ævintýri okkar, við stöndum allir við bakið á honum." sagði Giroud í samtali við franska fjölmiðla.
Athugasemdir
banner
banner