Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson tjáði sig um gengi síns félagsiðs, Randers í Danmörku, í viðtali við Fótbolta.net. Eftir frábæran fyrri helming í mótinu gekk allt á afturfótunum eftir vetrarfrí.
„Þetta hefur verið þungt hjá Randers og ég er að koma úr miklum vonbrigðum. Síðasta sunnudag skiptist deildin upp og við náðum ekki markmiðum okkar (að fara í umspil sex efstu liðanna) og það var stórslys af hálfu félagsins. Það var ágætt að kúpla sig út og koma hingað í góðu stemninguna með landsliðinu," segir Hannes.
Ólafur Kristjánsson þjálfar Randers sem var í toppbaráttu fyrri hlutann en hrapaði síðan seinni hlutann.
„Það eru allir búnir að líta í eigin barm og reyna að greina þetta og fara yfir þetta. Þetta hefur verið stórfurðulegt tímabil. Við hefðum getað gert ýmislegt betur en það er í rauninni lýgilegt hvernig þetta hefur verið í síðustu leikjum, við höfum verið betri aðilinn í þeim nánast öllum en okkur tekst ekki að setja boltann í markið á meðan andstæðingarnir ná því í þessum fáu færum sem þeir ná. Það er ótrúlegt hvernig þetta hefur spilast en svona er stundum fótboltinn."
Ísland er að búa sig undir mikilvægan leik gegn Kosóvó sem fram fer á föstudaginn. Á morgun flýgur hópurinn út.
„Þetta er lykilleikur í því að komast til Rússlands. Við mætum eins og alltaf, dýrvitlausir og harðákveðnir í að gera okkar besta og taka öll stigin heim," segir Hannes en allt viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir