Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 21. mars 2017 11:38
Elvar Geir Magnússon
Parma
Heimir: Nenni ekki að ræða þetta hér - Vil bara tala um þennan leik
Icelandair
Heimir býst við erfiðum leik gegn Kosóvó. Hér er hann á æfingu Íslands í dag.
Heimir býst við erfiðum leik gegn Kosóvó. Hér er hann á æfingu Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari segir að umræðan varðandi Viðar Örn Kjartansson sé að baki, nú sé horft fram á veginn á leikinn mikilvæga gegn Kosóvó.

Heimir segir að þessi umræða hafi ekki truflað undirbúning íslenska liðsins.

„Nei nei, við látum það ekkert hafa áhrif á okkur hér. Við viljum bara fókusera á þennan leik og viljum bara tala um þennan leik. Þessi umræða er bara búin. Ég nenni ekki að ræða þetta hérna. Við höfum reynt það hingað til að vera eins heiðarlegir og við getum. Samstarf okkur við fjölmiðla hefur verið með miklum ágætum. Við látum ekkert svona hafa áhrif á okkur," segir Heimir.

Íslenska landsliðið er í Parma á Ítalíu þar sem liðið er að búa sig undir mikilvægan leik gegn Kosóvó í undankeppni HM sem fram fer í Albaníu á föstudag. Á morgun flýgur hópurinn yfir.

Hopur Kosóvó hefur verið opinberaður.

„Þetta er mjög gott lið og flottir einstaklingar. Með hverjum leiknum sem þeir spila því skipulagðari og erfiðara verða þeir. Það sem við höfum kannski fram yfir þá er að við höfum verið lengi saman," segir Heimir.

Í viðtalinu hér að ofan ræðir hann nánar um undirbúninginn í Parma og komandi mótherja. Viðtalið var reyndar truflað af vökvunarkerfi vallarins eins og sjá má!

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner
banner