Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. mars 2017 08:30
Stefnir Stefánsson
Henderson fer með Liverpool til Tenerife
Henderson fær að sleikja sólina á Tenerife
Henderson fær að sleikja sólina á Tenerife
Mynd: Getty Images
Fyrirliði Liverpool, Jordan Henderson, ferðaðist með liðinu til Tenerife í dag. En Jurgen Klopp tekur alla þá sem geta eitthvað æft og eru ekki með landsliðum sínum í æfingabúðir þar. Daniel Sturridge fékk til að mynda ekki að fara með.

James Milner, Dejan Lovren, Joel Matip, Loris Karius, Alberto Moreno og Lucas Leiva fengu allir að fara til Tenerife, en með þeim eru einning nokkrir ungir leikmenn ásamt fjölskyldum þeirra.

Henderson hefur verið frá vegna meiðsla síðan í sigri Liverpool á Tottenham þann 11. febrúar síðastliðinn. Klopp reiknar með að hann verði klár í slaginn fyrir baráttuna um Liverpool-borg þegar Liverpool mætir Everton á Anfield þann 1. apríl.
Athugasemdir
banner
banner