Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 21. mars 2017 17:00
Magnús Már Einarsson
Klopp hissa á að fá ekki símtal frá Coleman
Ben Woodburn varð yngsti markaskorari í sögu Liverpool fyrr á þessu tímabili.
Ben Woodburn varð yngsti markaskorari í sögu Liverpool fyrr á þessu tímabili.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segist vera hissa á að hafa ekki fengið símtal frá Chris Coleman áður en hann valdi hinn 17 ára gamla Ben Woodburn í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Írlandi á föstudag.

„Ég var hissa á þessu. Ég veit ekki alveg hvað er eðlilegt í svona málum hér," sagði Klopp.

„Þetta er ekki gagnrýni en þegar þú velur 17 ára leikmann í fyrsta skipti þá hélt ég að hann myndi mögulega hringja í mig."

Woodburn hefur komið við sögu í nokkrum leikjum hjá Liverpool á þessu tímabili.

„Hann þarf að læra, vaxa, bæta sig og allt þetta. Núna eru tveir stjórar sem bera ábyrgð á honum," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner