Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. mars 2017 16:15
Magnús Már Einarsson
Phil Jones dregur sig úr enska hópnum
Phil Jones.
Phil Jones.
Mynd: Getty Images
Phil Jones, varnarmaður Manchester United, hefur dregið sig úr enska landsliðshópnum fyrir komandi leiki gegn Þýskalandi og Litháen.

Jones meiddist á æfingu og getur því ekki spilað leikina.

Enska knattspyrnusambandið hefur ekkert tjáð sig meira um meiðslin og því er óljóst hvort Jones missi einnig af næstu leikjum með Manchester United.

Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, ætlar ekki að bæta leikmanni við hópinn í stað Jones að svo stöddu en hann gæti gert það eftir vináttuleikinn við Þýskaland á morgun.

Gary Cahill verður í banni gegn Lithaén á sunnudag en Chris Smalling, John Stones og Michael Keane eru aðrir miðverðir í hópnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner